
Eftirlýstur: Hættulegasti vopnasölumaður heims
Wanted - The World's Most Dangerous Arms Dealer
Heimildarmynd frá 2023 um kínverskan huldumann sem gengur undir nafninu Karl Lee og er talinn hættulegasti vopnasölumaður heims. Í myndinni fylgja rannsóknarblaðamenn og sérfræðingur á sviði vopnasölu slóð Lees um fjórar heimsálfur í von um að varpa ljósi á umfang viðskipta hans. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.