
Andlitið
Twarz
Pólsk verðlaunamynd frá 2018 í leikstjórn Malgorzötu Szumowska. Andlit Jaceks afmyndast í vinnuslysi og hann gengst undir andlitsígræðslu, fyrstur allra í Póllandi. Í kjölfarið tekst hann á við sjálfsmyndarvanda þar sem hann þarf að kynnast spegilmynd sinni upp á nýtt. Aðalhlutverk: Mateusz Kosciukiewicz, Agnieszka Podsiadlik og Malgorzata Gorol. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.