
Af jörðu ertu kominn
Íslensk heimildarmynd sem var framleidd árið 2019 í tilefni þess að 50 ár voru liðin frá því að maður steig í fyrsta sinn fæti á yfirborð tunglsins, en það var atburður sem hafði djúpstæð áhrif á skilning okkar á jörðinni. Í myndinni er litið til þess mannlega á bak við tunglferðirnar og geimfarar sem fóru til tunglsins segja frá upplifun sinni af því að sjá jörðina í fjarska. Dagskrárgerð: Rafnar Orri Gunnarsson og Örlygur Hnefill Örlygsson. Framleiðsla: Colorwaves ehf. fyrir The Exploration Museum.