
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
Dönsk talsett teiknimynd frá 2019. Muggur er glaður strákur sem elskar ekkert meira en fjölskylduna sína og götuhátíðina sem haldin er árlega. Því er það honum mikið áfall þegar foreldrar hans ákveða að skilja og líf hans gjörbreytist. Getur götuhátíðin bjargað fjölskyldunni hans? Leikstjórar: Anders Morgenthaler og Mikael Wulff.
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1991. Spyrill: Stefán Jón Hafstein. Dómari: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir. Stigavörður Oddný Eir Ævarsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Að þessu sinni mætast lið Flensborgarskóla og Fjölbrautaskólans við Ármúla. Lið Flensborgarskóla skipa Bjarni Kristjánsson, Skarphéðinn Orri Björnsson og Svanur Snorrason. Lið Fjölbrautaskólans við Ármúla skipa Ingunn Snædal, Stefán Broddi Guðjónsson og Svanur Sigurðsson.
Steinsteypuöldin er þáttaröð í umsjón Egils Helgasonar og Péturs H. Ármannssonar. Þar er rakin saga byggingarlistar og borgarskipulags í Reykjavík á tuttugustu öld. Þáttaröðin hefst 1915, í stórbrunanum þar sem eyddust fjölmörg timburhús í bænum. Þá hófst tími steinsteypuhúsanna. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Sumarið 2013 réðust íbúar Vestmannaeyja og Hornafjarðar í umfangsmiklar framkvæmdir í samstarfi við færustu hönnuði landsins. Þeir máluðu, smíðuðu og gerðu upp gömul hús og gáfu ný hlutverk. Umsjónarmaður: Guðrún Dís Emilsdóttir. Handrit og stjórn framleiðslu: Þórhallur Gunnarsson. Dagskrárgerð: Sigurður R. Jakobsson.
Heilinn er undarlegt fyrirbæri og hægt að hafa áhrif á hann og hegðun einstaklinga með mismunandi hætti. Fræðandi, danskur þáttur þar sem sjónhverfingarmanninum og dáleiðandanum Jan Hellesøe er fylgt eftir.
Þáttur frá 1991 sem byggir á tónlist eftir Gunnar Þórðarson. Dagskráin er látin gerast í framtíðinni þegar vinnustofur Gunnars finnast í iðrum jarðar. Þegar flett er í gögmlum gögnum koma gersemar í ljós.
Fram koma söngvararnir Björgvin Halldórsson, Egill Ólafsson, Pálmi Gunnarsson og Ragnhildur Gísladóttir ásamt dönsurum úr Íslenska dansflokknum undir stjórn Láru Stefánsdótttur og leikhópnum Perlunni. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson.

Þriðja þáttaröð þessara stórbrotnu náttúrulífsþátta með David Attenborough um Jörðina, náttúru hennar og dýralíf á öllum árstíðum. Þættirnir eru talsettir á íslensku en sýndir með ensku tali á RÚV 2.
Breskir dramaþættir frá 2024. Gabriel og Andy ættleiða sjö ára dreng og Gabriel neyðist til að horfast í augu við fortíðina og gera upp málin við föður sinn áður en hann getur sjálfur tekist föðurhlutverkið á hendur. Aðalhlutverk: Leo Harris, Sion Daniel Young og Fra Fee. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 14 ára.
Portúgalskir sakamálaþættir frá 2022. Ungur námsmaður finnst myrtur í smábæ í Portúgal. Dómari í málinu stendur frammi fyrir erfiðri ákvörðun þegar rannsóknin tekur óvænta stefnu. Aðalhlutverk: Margarida Vila-Nova, Nuno Lopes og Ivo Canelas. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Breskir spennuþættir frá 2024. Þegar tölvuþrjótar taka yfir stjórn næturlestar frá Glasgow til London þurfa tveir ókunnugir einstaklingar – farþegi um borð og starfsmaður hjá netöryggisstofnun – að hjálpast að við að bjarga farþegum lestarinnar og afstýra stórslysi. Aðalhlutverk: Joe Cole og Alexandra Roach. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Dönsk leikin þáttaröð frá 2024 byggð á sönnum atburðum. Kærustuparið Iben og Alex eru hluti af samfélagi ungra anarkista sem heldur til í Ungdómshúsinu á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Þegar borgin selur trúfélagi húsið og til stendur að rýma það grípaanarkistarnir í húsinu til aðgerða. Iben og Alex átta sig á að þau hafa ólíkar hugmyndir um hvaða aðferðum skal beita til að ná sínu fram. Aðalhlutverk: Thit Aaberg, Elias Budde Christensen og Sandra Guldberg Kampp. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.