Krúttlegir teiknimyndaþættir um litla hafbúa sem eru saman í bekk og elska að syngja og dansa. Kennarinn þeirra er hress gullfiskur sem kennir þeim ýmislegt um lífið og tilveruna.
Ævintýralegir þættir um músafjölskyldu sem býr á lítilli plánetu.
Friðþjófur forvitni er forvitinn og yndislegur api sem getur oft á tíðum verið full ævintýragjarn. Fylgjumst með ævintýrum hans og mannsins með gula hattinn eiganda hans.
Stærðfræðiofurhetjurnar Millý, Geó og Bó hjálpa krökkum að læra um tölur, form og mynstur.
Fallegir þættir um litla björninn Móa sem ferðast um allan heiminn á hjólinu sínu.
Fallegir teiknimyndaþættir um óvenjulega vináttu bjarnarins Ernests og músarinnar Célestine.
Glænýir þættir um óteljandi ævintýri Strumpanna og Kjartans galdrakarls sem fara hér á kostum í Strumpabæ.
Matthildur er 12 ára stelpa sem býr yfir sérstöku leyndarmáli. Á hverjum degi þegar hún vaknar býr hún yfir nýjum ofurkrafti sem hún þarf að læra að stjórna. Aðeins besti vinur hennar veit af þessu og saman lenda þau í alls kyns ævintýrum.
Hvolparnir síkátu halda áfram ævintýrum sínum og hafa aldrei verið hressari.
Fjörugir teiknimyndaþættir um ref, tvö villisvín og fugl sem eru orðin þreytt á að lifa villt í náttúrunni og verða sér úti um búninga til að dulbúast sem venjuleg gæludýr.
Rán er ung og hress stelpa sem styttir sér stundir með ímynduðu vinkonu sinni. En hún Rún virðist raunverulegri en flestir.
Norsk heimildarþáttaröð um fjóra norska unglingsdrengi sem dreymir um að verða atvinnumenn í knattspyrnu.
Þáttaröð um nýsköpun, skapandi hugsun og iðngreinar. Í þáttunum fylgjumst við með nýsköpunarkeppni ungs fólks í áttunda til tíunda bekk þar sem þátttakendur fá að þróa hugmyndir sínar í flottar frumgerðir. Einnig sjáum við hvernig raftónlistarmaðurinn Daði Freyr býr til nýtt hljóðfæri með aðstoð Fab Lab á Íslandi og skoðum hvernig iðngreinar hafa áhrif á nýsköpun. Þættirnir eru í umsjón Daða Freyr Péturssonar og Berglindar Öldu Ástþórsdóttur. Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Egill Helgason hefur umsjón með þætti dagsins. Fyrst til að ræða fréttir vikunnar koma þau Gylfi Magnússon prófessor, Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra, Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur og Ásgeir Brynjar Torfason hagfræðingur. Þá fær Egill til sín Guðna Th. Jóhannesson forseta Íslands. Að lokum er viðtal við rannsóknarblaðamennina Catherine Collins og Douglas Frantz um laxeldi.
Kveikur er fréttaskýringaþáttur þar sem áhersla er lögð á rannsóknarblaðamennsku og almennar fréttaskýringar. Ritstjórn og dagskrárgerð: Ingólfur Bjarni Sigfússon, Arnar Þórisson, Arnhildur Hálfdánardóttir, Árni Þór Theodórsson, Ingvar Haukur Guðmundsson, Jóhann Bjarni Kolbeinsson, Karl Newman, María Sigrún Hilmarsdóttir og Tryggvi Aðalbjörnsson.
Rafbílavæðing er komin á fleygiferð á Íslandi en ýmsar hindranir eru í veginum. Kveikur skoðar sérstaklega þátt stjórnvalda sem hafa með skattaafslætti auðveldað þúsundum landsmanna að kaupa sér rafbíl.
Í seinni hluta þáttarins kynnumst við Ottó Bjarka Arnar sem ólst upp hjá foreldrum með þroskafrávik og flogaveiki.
Í þessari tíu þátta röð spjallar Ásgrímur Sverrisson við íslenska kvikmyndaleikstjóra um myndir þeirra. Brugðið er upp völdum atriðum og rætt um hugmyndirnar sem að baki verkunum liggja.
Í þessum þætti ræðir Ásgrímur við kvikmyndaleikstjórann Hrafn Gunnlaugsson um feril Hrafns og þeir skoða saman brot úr myndum hans. Sýnd eru brot úr myndunum Óðal feðranna, Okkar á milli í hita og þunga dagsins, Hrafninn flýgur, Í skugga hrafnsins, Hvíti víkingurinn, Hin helgu vé, Myrkrahöfðinginn og Opinberun Hannesar.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk jafnt í borg sem sveit og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Sigrún Þuríður Runólfsdóttir og Þórdís Claessen. Dagskrárgerð: Magnús Atli Magnússon, Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson og Elvar Örn Egilsson.
Landinn fjallar um Lausnahringinn. Áhugavert verkefni sem varð til í leikskólanum Brákarborg í Reykjavík og miðar að því að bæta samskipti. Við förum á spilakvöld í Bárðardal, heimsækjum kjólameistara á Ísafirði, ræktum grænmeti í gámi í Vestmannaeyjum og tölum við tónskáld í Grindavík sem fær lögin til sín á óvenjulegan hátt.
Hljómsveit norska ríkisútvarpsins flytur verk eftir Knut Vaage og Haydn. Eivind Aadland stjórnar og Harald Aadland leikur á fiðlu.
Hljómsveit norska ríkisútvarpsins stígur út á götur Oslóar og leyfir gangandi vegfarendum að njóta klassískra tóna.
Mynd frá 2000 um Hans Jóhannsson fiðlusmið. Dagskrárgerð: Inga Lísa Middleton.
Ferða- og matreiðsluþættir frá BBC. Sjónvarpskokkurinn Rick Stein ferðast um Frakkland í leit að földum perlum í matargerð.
Bolli og Bjalla eyða Stundinni okkar úr manna minnum og þurfa að leggjast á eitt til að koma í veg fyrir að hún gleymist að eilífu.
Þau ferðast í gegnum sögu Stundarinnar okkar og hitta þar fyrrverandi þáttastjórnendur, þá Gunna og Felix, Björgvin Franz, Sigyn Blöndal, Flakkarann og fleiri góðkunningja.
Ætli Bolla og Bjöllu takist að bjarga Stundinni okkar fyrir jól eða ætli þau eyði jólunum líka?
Bolla þykir ekki mikið til koma þegar að bolludagur, sprengidagur og öskudagur ganga í garð en þá fær hann heimsókn frá þrem draugum sem vilja breyta hugarfari hans.
Bjarmi kennir Agnari og krökkunum hvað rafíþróttir eru og Gleðiskruddurnar ræða við okkur um styrkleika.
Frímínútur eru frábærar! Í þessari fjörugu spurninga- og þrautakeppni mætast tvö lið þar sem þau leysa skemmtilegar þrautir og svara spurningum um allt milli himins og jarðar!
Umsjónarmenn eru Alex Eli Schweitz Jakobsson og Rebakka Rán Guðnadóttir
Í þessum þætti mætast liðin Sjeikarnir og Bababúí bræður. Liðin keppa meðal annars í þrautunum Klessubílar og Út í skó.
Klessubílar: Keppendur rúlla dótabílum yfir borð til að reyna að fella plastglasaturna andstæðinga. Liðið sem er fyrr til að fella öll glös andstæðingsins vinnur.
Út í skó: Keppendur reyna að vippa skó með fótunum yfir marklínu svo skórinn lendi uppréttur. Tvö stig eru gefin fyrir hvern skó sem lendir uppréttur innan vallarhelmings.
Keppendur eru:
Sjeikarnir: Kristín Þórdís Guðjónsdóttir og Katla Guðrún Kristinsdóttir
Bababúí bræður: Högni Bergsson og Björgvin Máni Kamban Sindrason
Þrjár leiknar stuttmyndir úr smiðju ungra höfunda sem framleiddar voru í tengslum við verkefnið Sögur hjá KrakkaRÚV. Handritin að stuttmyndunum þremur, Fimmhundruðkallinn, Dularfulla hálsmenið, Bókrollan og stuldurinn á hálsfestinni, voru valin í handritasamkeppni Sagna og eru höfundarnir á aldrinum 9-12 ára.
Í myndinni Fimm Hundruð kall þurfa þær Sigrún og Guðrún að ná til baka 500 krónum sem er rænt frá þeim. En þær komast að því að það er mun meira en bara 500 krónur í húfi.
Handrit: Salka Björt Björnsdóttir
Aðalhlutverk: Guðrún Gunnarsdóttir, Judith Stefnisdóttir og Fjölnir Gíslason
Leikstjórn : Sturla Holm Skúlason
Smiðurinn Oskar Boström sýnir skemmtilega og hagnýta smíði. Hann sýnir hvernig hægt er að smíða húsgögn, til dæmis borðstofuborð, bekk og trékassa.
Íþróttafréttir.
Bein útsending frá afhendingu Edduverðlaunanna sem fram fer í Háskólabíói. Kynnar kvöldsins eru Salka Sól Eyfeld og Sólmundur Hólm. Stjórn útsendingar: Þór Freysson.
Heimildarþáttaröð um baráttuna við COVID-19 þar sem fylgst er með störfum þeirra sem stjórnuðu aðgerðum í faraldrinum. Í þáttunum er einblínt á mannlega hlið faraldursins og sagt frá sorgum og sigrum í baráttu þjóðarinnar við að hemja útbreiðslu veiru sem setti heimsbyggðina á hliðina. Leikstjóri: Sævar Guðmundsson. Framleiðendur: Sævar Guðmundsson, Jóhannes Kr. Kristjánsson, Anna Karen Kristjánsdóttir og Brynja Gísladóttir.
Bólusetningar hefjast og jörð byrjar að skjálfa. Víðir segir að eldgos sé ekki það sem við þurfum í miðjum faraldri. Smitrakningarbarn fæðist og lífið heldur áfram. Þjóðin gengur vongóð út í sumarið.
Leikin þáttaröð frá BBC. Gail, Belle, David og Hannah búa hvert í sinni íbúð í fjórbýli í Manchester. Þegar röskun verður á högum þeirra fer keðjuverkandi atburðarás af stað sem hefur víðtæk og ófyrirsjáanleg áhrif. Aðalhlutverk: Alison Steadman, Victoria Hamilton, Adrian Lester og Melissa Johns. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Egill Helgason hefur umsjón með þætti dagsins. Fyrst til að ræða fréttir vikunnar koma þau Gylfi Magnússon prófessor, Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra, Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur og Ásgeir Brynjar Torfason hagfræðingur. Þá fær Egill til sín Guðna Th. Jóhannesson forseta Íslands. Að lokum er viðtal við rannsóknarblaðamennina Catherine Collins og Douglas Frantz um laxeldi.