Lærið um tölustafina með Tölukubbunum!
Krúttlegir teiknimyndaþættir um litla hafbúa sem eru saman í bekk og elska að syngja og dansa. Kennarinn þeirra er hress gullfiskur sem kennir þeim ýmislegt um lífið og tilveruna.
Fallegir þættir um litla björninn Móa sem ferðast um allan heiminn á hjólinu sínu.
Elías er ungur og áhugasamur björgunarbátur. Hann er ósvífinn, fjörugur og mikils metinn í heimabæ sínum. Vinir Elíasar skipta honum öllu máli og leggur hann í hvaða ævintýri sem er til þess að bjarga vinum sínum úr ógöngum.
Fjörugir þættir um sjóræningjastelpuna Rán og Sævar sem flýgur sinni eigin sjóflugvél.
Hressir teiknimyndaþættir um ævintýri sjóræningjanna í Daufhöfn og Matthildi vinkonu þeirra. Byggðir á samnefndum bókum í þýðingu Braga Valdimars Skúlasonar.
Ólíku eðlukrúttin Bubbi, Gunna og Tobbi eru fjörugir og skemmtilegir vinir sem búa í ævintýraheimi þar sem ekkert er ómögulegt.
Ástsælu Múmínálfarnir sem allir þekkja úr smiðju Tove Janson mæta aftur og lenda í fleiri skemmtilegum ævintýrum.
Hvolparnir síkátu halda áfram ævintýrum sínum og hafa aldrei verið hressari.
Rán er ung og hress stelpa sem styttir sér stundir með ímynduðu vinkonu sinni. En hún Rún virðist raunverulegri en flestir.
Heimspekilegar vangaveltur fyrir krakka á aldrinum 6-12 ára.
Stuttir þættir þar sem við kynnumst merkiskonum mannkynssögunnar. Sumar eru frægar, aðrar eru óþekktar en allar eru þær töffarar og eldhugar.
Hvernig ætli lífið sé fyrir mann sem er bara 15 cm hár?
Edduverðlaunaþættir frá 2016 úr smiðju Ævars vísindamanns. Sem fyrr kannar Ævar furðulega og spennandi hluti úr heimi vísindanna. Hann fer meðal annars í svaðilför til Surtseyjar og rannsaka stærstu tilraun í heimi. Stórskemmtilegir þættir fyrir alla fjölskylduna. Dagskrárgerð: Gunnar B. Gudmundsson og Ævar Þór Benediktsson.
Í þessum þætti skoðum við stærðfræði og alls kyns furðuleg stærðfræðidæmi, vísindamaður dagsins er Alan Turing og að lokum ætlum við að reyna að búa til Dauðahafið.
Skemmtiþáttur í tilefni Hinsegin daga þar sem flutt verður tónlist og fólk tekið tali. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson. Stjórn upptöku: Þórður Helgi Guðjónsson.
Heimildarþættir frá BBC um húðina og öll fjölbreyttu form hennar. Þróun þessa stóra líffæris er rannsökuð. Húð hefur þróast með ýmsum hætti og gegnir fjölbreyttum hlutverkum. Þessi fjölbreytileiki hefur gert hryggdýrum kleift að dafna á öllum svæðum jarðar. Meðal annars er skoðað hvernig húð og skinn hefur þróast og orðið að vopni í formi beittra kvista, brynja og eiturs.
Ferða- og matreiðsluþáttur þar sem Kristinn Guðmundsson ferðast með vini sínum Janusi Braga og eldar fyrir hann. Nú fara þeir um Dýrafjörð þar sem þeir eru alls ekki á heimavelli. Dagskrárgerð og framleiðsla: Kristinn Guðmundsson.
Í þessum þætti svindla strákarnir aðeins á Dýrafirði og fara yfir á Ingjaldssand. Kristinn fékk eitt sinn hugljómun við félagsheimilið á Ingjaldssandi þar sem hann las vitlaust á skilti og úr varð pizzan Ingjaldssandur sem þeir elda nú í fjörunni á Ingjaldssandi í nístingskulda.
Sænskir þættir um fiskveiðar. Þáttastjórnendurnir Emilie Björkman og Martin Falklind ferðast um Svíþjóð, hitta fiskveiðiáhugamenn, stunda veiðar og gefa góð ráð.
Einstök heimildarþáttaröð þar sem farið yfir sögu og þróun rokk- og popptónlistar á Íslandi. Í þáttunum hittum við söngvara, lagahöfunda, upptökustjóra og aðra sem hafa sett svip sinn á blómlegt tónlistarlíf Íslendinga í gegnum tíðina. Dagskrárgerð: Örn Marinó Arnarson og Þorkell Harðarson í samvinnu við Dr. Gunna.
Valin myndskeið úr Landanum þar sem áhugaverðir staðir eru skoðaðir og merkilegir Íslendingar heimsóttir. Dagskrárgerð: Gísli Einarsson og Karl Sigtryggsson.
„Það er eins og ég segi stundum, það er ekki skrúfa eftir. Það er allt breytt,“ segir Pétur Jónasson, ljósmyndari á Húsavík, þegar hann er spurður um það hvernig ljósmyndatæknin hafi þróast síðan hann byrjaði að mynda um miðja síðustu öld. Hann lærði að mynda á filmu og framkalla sjálfur en dundar sér núna við að forrita smáforrit fyrir snjallsíma. Pétur hefur rekið ljósmyndastofu sína á Húsavík síðan árið 1962 og er hún í dag elsta starfandi ljósmyndastofa landsins.
Holly er 13 ára stelpa sem syngur og semur sín eigin lög. Hún er umkringd vinum og fjölskyldu en dreymir um að bjarga heiminum. Þó hún þurfi að byrja í garðinum sínum.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Íþróttafréttir.
Veðurfréttir.
Sumarlandinn verður á flakki í sumar og hittir landann fyrir í sínu náttúrulega umhverfi, uppi á fjöllum, úti í garði, inni í skógi og allt um kring. Sumarlandinn leitar uppi áhugaverða viðburði og skemmtilegar sögur. Sumarlandinn tekur líka lagið ef vel liggur á honum.
Umsjón: Gísli Einarsson, Guðríður Helgadóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Elsa María Guðlaugs-Drífudóttir, Þórgunnur Oddsdóttir, Sigrún Hermannsdóttir og Helga Margrét Höskuldsdóttir. Trúbadorinn og bóndinn Hlynur Snær verður einnig með í för.
Íslensk heimildarþáttaröð í fjórum þáttum. Þótt meirihluti landsmanna búi í þéttbýli býr sumt fólk á stöðum þar sem náttúran hefur meiri áhrif á líf þess en gengur og gerist. Í þessari þáttaröð greinir fólk frá ýmsum stöðum á landinu frá ástríðu sinni fyrir því, hvers vegna það kýs að búa utan þéttbýlis og hvað veldur því að það vill hvergi annars staðar búa. Dagskrárgerð: Magnús Atli Magnússon og Lára Ómarsdóttir.
Baldur Rafnsson var orðinn leiður á lífinu í höfuðborginni og langaði að verja meiri tíma með fjölskyldunni. Þegar færi gafst festi hann ásamt konu sinni kaup á jörðinni Vattarnesi og fjölskyldan fluttist þangað búferlum. Innan um fugla, fiska, sauðfé og náttúrudýrð Skrúðs líður honum vel. Skrúður er griðastaður hans, eyjan hans.
Dramatískir gamanþættir frá BBC. Lífið getur verið strembið fyrir unglækna á fæðingardeild á erilsömu sjúkrahúsi í London. Þeir reyna að samræma einkalífið og vinnuna þar sem stutt er milli hláturs og gráts. Aðalhlutverk: Ben Whishaw, Ambika Mod og Rory Fleck Byrne. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Þáttaröð í tíu hlutum um íslenskar kvikmyndir allt frá fyrri hluta 20. aldar til samtímans. Í hverjum þætti er ákveðið tímabil tekið fyrir, fjallað um kvikmyndir þess tímabils og sýndir valdir hlutar úr þeim. Rætt er við á annað hundrað kvikmyndagerðarmenn, leikara og kvikmyndasérfræðinga um verkin og margvíslega fleti íslenskrar kvikmyndagerðar. Leikstjóri: Ásgrímur Sverrisson.
Íslenskum kvikmyndum fjölgar á seinni hluta fyrsta áratugar þessarar aldar. Margar þeirra má kalla rammíslenskar. Þær gerast flestar í nútímanum en sækja efnivið í sögu og sagnaarf eða skoða samfélagsgerð og samskiptavenjur. Á sama tíma koma fram margar myndir þar sem umheimurinn er áberandi á yýmsa vegu. Því er meðal annars spurt, hvað er íslensk kvikmynd? Fjallað er sérstaklega um kvikmyndir Sólveigar Anspach en auk þess myndirnar Mýrin, Börn, Foreldrar, Skrapp út, Brúðguminn og Kaldaljós.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.