Brot úr menningarumfjöllun liðinnar viku. Fjallað á snarpan og líflegan hátt um það sem efst er á baugi hverju sinni í menningar- og listalífinu, jafnt með innslögum, fréttaskýringum, gagnrýni, pistlum og umræðu. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson og Halla Oddný Magnúsdóttir.
Víkingur Heiðar Ólafsson heldur þrenna tónleika í Eldborg í Hörpu um helgina þar sem hann leikur verk eftir Mozart af nýútgefinni plötu. Hann notar líka tækifærið og vígir glænýjan Steinway flygil sem Harpa fékk í 10 ára afmælisgjöf. Bergsteinn ræðir við Víking.
Þættir frá 2013 þar sem fylgst er með rannsóknum vísindamanna við Háskóla Íslands á vettvangi þar sem aðstæður eru býsna fjölbreyttar. Dagskrárgerð og stjórn upptöku er í höndum Jóns Arnar Guðbjartssonar.
Í lokaþættinum verður sjónum beint að rannsóknum á stórbrotinni náttúru landsins og hugað að breytingum á vistkerfum. Við kynnumst líka íslenska refnum í friðlandinu á Hornströndum.
Melrakkinn, eða íslenski refurinn, hefur verið hluti af íslenskri náttúru frá ómunatíð en aðrar tegundir hafa komið, sest að eða horfið.
Spurningaþættir í stjórn Felix Bergssonar og dr. Gunna. Í þáttunum takast íslenskar hljómsveitir á í æsispennandi spurningaleik, þar sem gáfur og viska, ásamt snerpu, atgervi og heppni ráða niðurstöðunni - já og tónlistarhæfileikar. Sextán hljómsveitir taka þátt í keppninni að þessu sinni. Stjórn upptöku: Helgi Jóhannesson.
Það er komið að úrslitaþættinum og þar mætast Lights on the Highway og Skriðjöklar í beinni útsendingu.
Íslensk þáttaröð í sex hlutum um dans. Þar er leitað svara við spurningum um hvers vegna fólk dansar, hvernig dansgleðin kviknar og hvers vegna sumir fæðast flinkir dansarar en aðrir taktlausir flækjufætur. Farið verður yfir sögu dansins á Íslandi, mismunandi danstegundir kannaðar og við kynnumst því hvernig dansinn brýst fram á ólíklegustu stöðum. Umsjón: Guðrún Sóley Gestsdóttir. Framleiðsla: Skot.
Þörfin fyrir að dansa brýst út við ólíklegustu aðstæður. Við dönsum ein, umkringd fólki, í myrkri, sundi og á sjúkrahúsum. Dansgleðin er aðstæðum, kunnáttu og takmörkunum yfirsterkari og finnur sér alls staðar farveg. Í þessum þætti kynnumst við dansi sem lækningu og lausn á ýmiss konar vanda.
Þáttur um lífið í landinu. Landinn ferðast um og hittir fólk sem fæst við margt áhugavert og skemmtilegt. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórgunnur Oddsdóttir Halla Ólafsdóttir og Arnar Björnsson. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson, Magnús Atli Magnússon og Jóhannes Jónsson.
Í þættinum er fjallað um stam, við kynnumst starfsemi samfélagshússins Vitatorgs, við fylgjumst með varpárangri skúma og við pössum upp á að enginn svindli í prófum í Háskólanum í Reykjavík.
Viðmælendur:
Anna Jóhannsdóttir
Ágúst Jónatansson
Ágústa Bernharðsdóttir
Bergljót María Sigurðardóttir
Drífa Baldursdóttir
Einar Magnússon
Emil Ragnar Hjartarson
Guðbjörg Ása Jóns- og Huldudóttir
Guðrún Guðjónsdóttir
Guðrún Rögnvaldsdóttir
Hjördís Sigurðardóttir
Jón Pétur Sævarsson
Karen Emilsdóttir
Lilja Jóhannesdóttir
Margrét Hákonardóttir
Ríkarð Brynjólfsson
Sigríður Fossberg Thorlacius
Steinar Matthíasson
Holly er 13 ára stelpa sem syngur og semur sín eigin lög. Hún er umkringd vinum og fjölskyldu en dreymir um að bjarga heiminum. Þó hún þurfi að byrja í garðinum sínum.
Önnur sería þar sem fylgst er með uppátækjum Lúkasar og öllu því sem gerist í hugarheimi hans.
Finnlands-sænskir þættir þar sem krakkar segja frá áhugamálum sínum.
Þau Ylfa og Máni standa vaktina í eldhúsinu og kenna okkur hvernig á að elda og baka ýmislegt góðgæti.
Dagskrárgerð: Eva Rún Þorgeirsdóttir
Umsjón: Ylfa Blöndal og Hilmar Máni Magnússon.
Ylfa og Máni útbúa geggjaðar nammikúlur - sem eru bæði góðar á bragðið og hollar!
Þessar þarf ekki að baka, bara stinga inn í ísskápinn.
Hér er uppskriftin:
Hollar nammikúlur
(sirka 20 stk):
2 dl möndlur
2 og 1/2 dl ferskar döðlur (eða 10 döðlur - mikilvægt að taka steininn úr! )
1 kúfull msk möndlusmjör
1 tsk hlynsíróp eða agave sýróp
2 tsk kakó
1/5 tsk salt
Hjúpur
100g suðusúkkulaði
1/2 tsk kókosolía
Gróft salt
Aðferð:
Settu möndlurnar í matvinnsluvél.
Hakkaðu möndlurnar þar til þær eru orðnar að kurli.
Settu döðlurnar (án steina) í matvinnsluvélina og blandaðu.
Bættu kakó, salti, sýrópi og möndlusmjöri út í og maukaðu vel saman.
Búðu til litlar kúlur úr deiginu.
Settu kúlurnar á disk og geymdu í ísskáp í 30-60 mín.
Hjúpur:
Bræddu súkkulaðið og hrærðu kókosolíunni saman við í pottinum.
Veltu kúlunum upp úr súkkulaðinu og raðaðu þeim á disk.
Það er gott að setja bökunarpappír undir svo þær festist ekki við diskinn.
Stráðu grófa saltinu yfir súkkulaðið að lokum.
Geymdu kúlurnar í ísskáp í allavega 30 mínútur svo súkkulaðið nái að harðna vel.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Krakkafréttir dagsins: 1. Endurnýjar Bjössaróló í Borgarnesi 2. Jól í skókassa 3. Alveg sama hvert ferðinni er heitið
Umsjón: Gunnar Hrafn Kristjánsson
Íslensk tónlistarmyndbönd.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Íþróttafréttir.
Veðurfréttir.
Brot úr menningarumfjöllun liðinnar viku. Fjallað á snarpan og líflegan hátt um það sem efst er á baugi hverju sinni í menningar- og listalífinu, jafnt með innslögum, fréttaskýringum, gagnrýni, pistlum og umræðu. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson og Halla Oddný Magnúsdóttir.
Jólahefðir fyrr og nú birtast okkur í Jólaboðinu, nýju leikriti sem er sýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu. Bergsteinn ræðir við Gísla Örn Garðarson leikstjóra og höfund sýningarinnar.
Sigurlaug Margrét Jónasdóttir fær til sín góða gesti úr öllum áttum og ræðir við þá undir fjögur augu. Gestirnir eiga það sameiginlegt að hafa áhugaverða sögu að segja. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Helga Rakel Rafnsdóttir kvikmyndagerðarkona greindist á þessu ári með MND, sem er banvænn hreyfitaugasjúkdómur. Faðir hennar, tónlistarmaðurinn Rafn Ragnar Jónsson eða Rabbi, lést úr sama sjúkdómi 49 ára gamall árið 2004.
Finnskur þáttur um BMX gengi frá Kotka sem tekst á við hættulegar áskoranir á hjólunum.
Nýjustu fréttir og íþróttir kvöldsins. Alla mánudaga til fimmtudaga.
Veðurfréttir
Þriðja þáttaröð þessara vinsælu íslensku spennuþátta. Rannsóknarlögreglumaðurinn Andri Ólafsson er kominn í rólegra starf innan lögreglunnar og hættur að rannsaka morðmál. En þegar morð er framið á landi sértrúarsafnaðar norður í landi gera draugar fortíðar óvænt vart við sig og Andri neyðist til að horfast í augu við þann sem hann óttast mest - sjálfan sig. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi ungra barna.
Spennan magnast upp innan vélhjólagengisins eftir að grunur vaknar um að á meðal þeirra leynist uppljóstrari.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Krakkafréttir dagsins: 1. Endurnýjar Bjössaróló í Borgarnesi 2. Jól í skókassa 3. Alveg sama hvert ferðinni er heitið
Umsjón: Gunnar Hrafn Kristjánsson
Íslensk tónlistarmyndbönd.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.