Matargat

Leyft öllum aldurshópum

Samloka

Í þættinum útbúa Ylfa og Máni einfaldar og bragðgóðar samlokur sem hægt er að taka með í nesti eða fá sér eftir skóla.

Samloka:

Súrdeigsbrauð, hummus eða gróft sinnep, harðsoðin egg, gúrka, tómatar, silkiskorin skinka, spægipylsa, ostur í sneiðum.

Hummus:

1 krukka kjúklingabaunir, 2 msk vatn, 2 msk tahini, 2 msk sítrónusafi, 1 hvítlauksrif pressað, 1 tsk salt, 1-2 msk ólífuolia, 1 msk steinselja.

Allt sett í matvinnsluvél og maukað saman þar til silkimjúkt.

Geymist í 5-7 daga í ísskáp

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Matargat

Þau Ylfa og Máni standa vaktina í eldhúsinu og kenna okkur hvernig á að elda og baka ýmislegt góðgæti. Dagskrárgerð: Eva Rún Þorgeirsdóttir. Umsjón: Ylfa Blöndal og Hilmar Máni Magnússon.

Þættir

,