268 - Auðir stólar og fjölþáttaógnir
Fjölþáttaógnir, fjölþáttaárásir og fjölþáttastríð hafa heyrst mikið í fréttum undanfarið og ekki að ástæðulausu því samhliða innrásarstríði Rússlands í Úkraínu hafa þessar ógnir og…
Þátturinn í dag er afmælisþáttur en nú eru Heimskviðuþættirnir orðnir 250. Í tilefni dagsins segjum við sögur fólks sem við þekkjum vel, en gröfum upp hluti sem færri þekkja. Svo kynntumst við fleirum sem ekki eru eins vel þekktir, en ættu kannski að vera það. Við fjöllum um hundakallinn Lars Lökke Rasmussen, badmintonmeistarann Jens Frederik Nielsen, áhrifavald frá Gaza, næsta leiðtoga Norður-Kóreu og mann sem hefur verið kallaður George Clooney seðlabankanna. Það og margt fleira kemur í ljós í þættinum.

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.