Þjóðsaga um hrekkjótta könguló
Anansi og matarboðið (V-Afríka, Karíbahafssvæðið og víðar)
Þjóðsaga þáttarins:
Þrymskviða (Norræn goðafræði - já kannski frekar goðsaga, þið verðið bara að hlusta á þáttinn..) - Athugið að atriði í þessari sögu gæti vakið óhug hjá yngstu börnunum, mælt er með að þau hlusti með fullorðnum.
Leikraddir:
Agnes Wild
Karl Pálsson
Margrét Erla Maack
Pétur Eggertsson
Ragnar Eyþórsson
Örn Ýmir Arason
Handrit, lestur, klipping og hljóðskreyting: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

Í þessum þáttum köfum við djúpt ofan í þjóðsögukistu heimsins. Sögurnar eru allskonar, sumar fyndnar, aðrar fróðlegar, sumar alveg út í hött og enn aðrar kannski svolítið hræðilegar eða draugalegar. Í hverjum þætti heyrum við tvær eða þrjár þjóðsögur frá ýmsum heimshornum. Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.