Sjónvarp
Útvarp
KrakkaRÚV
UngRÚV
MenntaRÚV
Horfa
Hlusta
Leit
Sögur
Þættir
Lokaþáttur
Þetta er seinasti þáttur Heimavistarinnar. Sigyn, Haffi og Sævar þakka fyrir sig á fjörugan og skemmtilegan hátt.
Stundin okkar í 54 ár
Þemað er Stundin okkar og það er af nægu að taka. Elsti sjónvarpsþáttur landsins og við kíkjum á brot af því besta. Bóla, Gunni og Felix, Ásta og Keli, Lilli, Rannveig og Krummi, Björgvin…
Ísland
Það er Íslandsþema í dag og Haffi og Sigyn velta fyrir sér íslenskunni og öðrum tungumálum. Við kíkjum á draugasafnið á Stokkseyri, leitum að Eiríki rauða, kynnum okkur Njálu og heyrum…
Föstudagsfjör
Í dag er föstudagsfjör hjá okkur. Við búum til tröllaleir, lærum kubbaleiki, Haffi býr til verðlaunagrip, Sævar gerir sítrónutilraun og kennir okkur að skrifa leyniskilaboð. Við rifjum…
Dagur jarðar
Í dag er dagur Jarðarinnar okkar og í þættinum ætlum við að skoða fallega staði, velta því fyrir okkur hvernig segulsvið jarðarinnar virkar og hvernig það tengist áttavita og norðurljósum.
Listir - Menning
Í þættinum lærum við að búa til dans, spyrjum okkur spurninga eins og hvað er list og geta allir verið listamenn, búum til brúðuleikhús og kíkjum í Borgarleikhúsið á samlestur tveggja…
Uppfinningar
Í dag er vísindaþema og við ætlum að tala um uppfinningar. Flugvélin, bíllinn, mótorinn, síminn og margt fleira. Emil Bjarki 5 ára sendi Sævari skemmtilegar spurningar sem Sævar svarar,…
Dýr
Í þættinum í dag fá Sigyn, Sævar og Haffi heimsókn frá hundum, ketti, páfagauk og krabba! Það er nefnilega dýraþema.
Ísland
Í þættinum í dag er Íslandsþema. Við fræðumst um eldgos og jökla, heimsækjum Hrísey, Vestmannaeyjar og Dimmuborgir og skoðum steina sem geta svo sannarlega sagt okkur merkilega sögu…
Íþróttir
Í dag ætla Sigyn og Haffi að kynna sér alls konar íþróttagreinar; fótbolta trix, smá-skylmingar á jafnvægisslá, glímuna sem er þjóðaríþrótt Íslendinga, sögu Ólympíuleikanna svo eitthvað…
Vísindi - Slím
Það er vísinda-föstudagur og við ætlum heldur betur að skemmta okkur saman í dag. Við búum til slím; það eru nefnilega vísindi á bak við það að búa til slím, skoðum innsend myndbönd…
Hversdagsleg vísindi
Það er vísindaþema hjá okkur í dag og við ætlum að skoða hversdagsleg vísindi. Það eru nefnilega vísindi á bak við nánast allt í umhverfi okkar. Hvernig virkar klósett? En gleraugu?…
Vísindi - Geimurinn
Það er vísindaþema hjá okkur í dag, nánar til tekið geimvísindadagur. Við ræðum um svarthol, geimferðir, geimverur, hvernig það er að gráta í geimnum, búum til geimfar, heyrum sögu…
,